pælingar systranna
Klukkan
09.06.2006 11:11:45 / systurnar

it´s summertime

ójá það er komið sumar.. sigurður (draumaprinsinn) dafnar vel og kominn með 3 tennur! og sú fjórða er að koma.. Guðrún Sif farin að vinna á fullu í kaupfélaginu í varmahlíð og Íris Ósk farin að vinna einnig á fullu í Þórðarhöfða og gistiheimilinu.. nóg að gera! við skelltum okkur saman í framsóknarhúsið á kosninganóttinni og fengum okkur nokkra bjóra, svo var djammað e-ð framá nóttina og voða stuð..Guðrún Sif entist þó ekki lengi og fór heim klukkan hálf 2 en Íris hélt áfram á barnum og kom heim undir morgunn..aníta frænka fékk þann heiður að passa prinsinn sem gekk bara mjög vel:) vonandi hægt að tala við hana aftur um pössun! annars höfum við lítið djammað undanfarið, guðrún búin að vera í varmahlíð og íris alltaf að vinna e-ð. en annars eru bara 7 dagar í að íris eigi 21 árs afmæli:D og 9 dagar í að guðrún verði 16 ára svo þá verður nú e-ð djammað;) aldrei að vita hvað okkur dettur í hug!;) annars eru vinstri grænir alveg að missa sig yfir tapinu í kosingunum og eru alveg grenjandi yfir því! kvarta yfir því að framsóknarmenn séu ekki enn byrjaðir að gera neitt! en það er frekar fáranlegt þar sem þeir eru ekki enn búnir að taka við sveitastjórninni.. en það verður sko nóg gert á næstu 4 árum! allavega miklu meira heldur en þeir gerðu nokkurntímann! enda voru þeir bara í eftirdragi hjá sjálfstæðismönnum sem eru kolruglaðir! en við viljum bara segja eitt við x-u, hættið að grenja og sættið ykkur við það að fólk í skagafirði vill breytingar sem þeir eru ekki búnir að sanna að þeir geti staðist undir! lengi lifi framsóknarflokkurinn8)

svo er ball 17.júní í reiðhöllinni! sem þýðir aðeins eitt! við systurnar eigum afmæli einmitt einum degi fyrir það og 2 dögum eftir svo aldrei að vita nema afmælispartý eiga sér stað á þeim tíma, sounds good to me;) guðrún í fríi þá helgi og íris vonandi ekki látin vinna í miklagarði þá helgi:)

systurnar kveðja með von um gott sumar8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 22:20:18 / systurnar

X-B með 4 menn !!!

Little Johnny and his classmates are supposed to draw a picture on the board...

James returned to his seat.

The teacher called on Ernie next.

Ernie returned to his seat.

Now it was Suzy's turn.

Suzy returned to her seat.

Next. the teacher called Jerry to the board.

Jerry returned to his seat.

Kim was called to the board.

Kim returned to her seat.

About this time, little Johnny began waving his arm hysterically. Little Johnny was well known for being dirty minded, so the teacher was reluctant to call on him for anything. But as the teacher looked at the picture on the chalkboard, she thought that there was no way that little Johnny could possibly do anything to make this picture dirty. So she called on Johnny, and he ran to the chalkboard.

Little Johnny had done it again!

ójá, sexy!! me getting so horny!!

Hjartarhyskið hefur stofnað lista fyrir næstu sveitastjórnarkosningar;

X-H

  1. sæti - Arnar Skúli Atlason
  2. sæti - Íris Ósk Elefsen
  3. sæti - Guðrún Sif B.Gísladóttir
  4. sæti - Bjarni Smári Gíslason
  5. sæti - Atli Víðir Hjartarson
  6. sæti - Rannveig Aðalbjörg Jóhannesdóttir a.k.a coach lilla
  7. sæti - Erna Ágústsdóttir
  8. sæti - Sunna Björk Atladóttir
  9. sæti - Ágúst Ingi Ágústsson
  10. sæti - Hjörtur Vilhjálmsson a.k.a Hjössi Vill
  11. sæti - Brynjar Elefsen
  12. sæti - Elvar Hólm Hjartarson a.k.a Elvar the waterboy
  13. sæti - Hjörtur Sævar Hjartarson a.k.a Svæk!
  14. sæti - Hjörtur Elefsen
  15. sæti - Bjarnfríður Hjartardóttir a.k.a Bjadda
  16. sæti - Ólína Björk Hjartardóttir
  17. sæti - Vala María Kristjánsdóttir
  18. sæti - Ragna Hrund Hjartardóttir

jáa þessi listi mun án efa leiða okkur til sigurs8)

jonas systirin kveður með von um gott gengi í kosningunum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 13:55:45 / systurnar

Silvía Nótt

Jæja þá er Guðrún í svíþjóð, kemur heim á krókinn kl.sex í fyrramálið. Öfunda hana ekkert smá að vera úti :lol: en er sjálf að fara út eftir fjóra mánuði, hehe það verður sko eitt peningunum þá:lol: . En annars er bara fínt af okkur systrum að frétta, þýðir ekkert annað svona þegar sumarið er  að ganga í garð.

Hér eru óvæntar uppákomur í fréttunum :  :haha:  http://www.b2.is/?sida=tengill&id=165059

Svo er evróvison í kvöld, eða undankeppni. Ekkert smá spennandi hvernig Íslandi eigi eftir að ganga. Allt búið að vera vitlaust þarna úti, vegna blótsyrðanna hjá henni og fl. Svo átti að vísa henni úr keppni ef hún myndi ekki taka blótsyriðin úr. Ég held að þau séu að gera eins og TATU eða hvað þær hétu sem tóku þátt fyrir nokkrum árum, var logið að þær væru lessu og það átti að vísa þeim úr keppni útaf hegðunarvandamálum og e-ð fl. Þannig ég held að þau séu að gera það sama, Sílvía vekur á sér athygli og svo bíða allir spenntir hvort hún eigi eftir að blóta upp á sviði, en þá eru þau tilbúin með fullkomið atriði. Og þannig mun hún komast áfram. Nei nei þetta er bara mín hugmynd. Hvað haldið þið??? haldið þið að hún muni komast áfram og vinna evróvison???

Endilega að kommenta um ykkar hugmyndir hvernig íslandi eigi eftir að ganga :)

En samt e-ð svo glatað:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 23:05:47 / systurnar

vinnuhelgin ærlega

góða kvöldið. já þá er ég mætt, loksins byrjuð að blogga með elefsen hinu megin við skjáinn.. já helgin er nú búin að fara í eintóma vinnu hjá okkur systrunum! byrjuðum á föstudaginn að vinna á unglingaballinu í miðgarði sem var nú reyndar bara mjög gaman! svo byrjuðum við kl.19 á laugardaginn (ígær) að vinna aftur í miðgarði á einhverri karlakórstónleikum & balli strax þar á eftir! þar var elefsen boðið í flugferð&guðrúnu í partý&dansa. já við höfðum sko gaman af þessu gömlu köllum, ekki annað hægt að segja. en þessir ungu voru nú hinsvegar skapstórir sumir og einn braut glas&bolla því guðrúnsif hellti smá vatni á hann því hann var að drepast! og þá var hún bara næstum barin afturábak (sem henni leist nú ekkert á) en það var helvíti fyndið! fékk kúlu á hausinn:( og íris glerbrot í hendina!:( svo var honum hent út af ingabirni, þakka þer fyrir það! og annar dauður inní eldhúsi! jaá þetta var nú meira ballið en geiri var að meika það;)

en ég á að vera að læra svo ég er fairn að læra

íris...BLOGGAÐU NÆST!!

jonas kveður með kúlu á hausnum

p.s. böllin í skagafirðinum voru,eru&munu ávallt vera í minnum haldin8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:37:44 / systurnar

..................

Ok geggjað þroskaheft, það kom svo bloggið, hvað er að ??

Er ekki alveg að meika þetta :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:34:42 / systurnar

AAAAAAAARRRRRRRRRGGGGGGGG

Djöfull hata ég þetta helvítis djöfulsins heitasta helvítis drasl!! Ég held að mér hafi aldrei tekist að skrifa blogg í einni tilraun. Það eyðist alltaf :evil: er að verða frekar pirruð á því og nenni ekki að skrifa þetta allt aftur en það endaði svona :

Guðrún bloggaðu!!!!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:31:57 / systurnar

MMMMMMMMM

MMMMMMMMMMM það er ömmudagur á morgun, við fáum mjólkugraut í hádeginu hjá ömmu á morgun, uppáhaldið okkar :) ég, mamma, Guðrún og Sigurður fengum okkur göngutúr í dag og komum við hjá ömmu og var kella þá ekki búin að geyma þessu :S Hún minntist nú líka á fyrra bloggið okkar, þar sem ónefndur maður er nefndur, og ég sagði henni að maður á ekki að gera neitt, eða seigja neitt sem maður vill ekki að aðrir tali um eða skrifi um. En hún vissi sko alveg hver þetta var!hehe en ekki meira um það. Varð bara að koma þessu á framfæri! Guðrún er að skemmta sér í samræmduprófunum núna.  Þannig það er endalaus hamingja þar :) en jæja nenni ekki að skrifa meira.

Guðrún bloggaðu svo!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 18:21:45 / systurnar

Alveg sprungnar!

Jæja þá er þetta í þriðja sinn sem við reynum að skrifa þetta :S

Þá eru þessar blessuðu fermingarveislur búnar og við búnar að éta á okkur gat. Vorum að enda við að koma úr frábærri veislu hjá Anítu Lind. Og þökkum við kærlega fyrir okkur. Þar hittum við marga ættingja okkar, unga sem aldna og suma MJÖG skrítna og mikla perra sem koma með álíka gáfulegar setningar ;"þú ert með svo stór brjóst" og " þú ert svo sæt", Erna þú veist um hvern ég er að tala!! Og voru margir þarna sem maður hefur ekki hitt lengi, en aðalega söknuðum við Ernu :( Erna hvar varstu???

Svo var Jonas systirin mætt í afmæli í gær hjá Söndru dóttur Jóns á Kaffi Krók og voru þar margar kræsingar á borðum. Við sátum svo og spjölluðum eitthvað fram eftir miðnætti, og héldum svo heim í kuldanum. Svo ætlaði hún að mæta á fund hjá ungum, en hálftíma fyrir fund fattaðist það að það væri fermingarveisla í Framsóknarhúsinu. Og varð að breyta því í snatri og er hún því stödd í Elefsen húsi.

Elefsen systirin og Ingi fengu skemmtilega heimsókn um tíu leytið frá þeim Jóka Birni, Loga og Óla í gærkveldi, Ingi helti uppá kaffi handa þeim og fengu þeir sér útí, en Elefsen systirin hélt sér bara í bjórnum, og kíktu svo drengirnir í bæinn kl.hálf þrjúleytið, en systirin fór bara að sofa, kl.orðin margt og mikið að gera daginn eftir. Svo í morgun kom Sara Líf í pössun til okkar og léku hún og Sigurður Snær sér bara saman voða stillt og góð. Annað slagið rifið og klórað í hvort annað:)



Systurnar kveðja útfylltar af mat :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 14:08:25 / systurnar

á móti sól

páskadagur er góður dagur. vaknaði í morgunn & það fyrsta sem eg fann var miði fyrir utan hurðina mína, las hann vel og vandlega og hóf leitina að páskaegginu minu. Fann það reyndar strax því það var of augljóst að hafa það í vagninum sigurðar sem var þarna bara of mikið, en þetta vakti upp litlu stelpuna í mér sem var bara æði og rosa spennandi. En svo kláraðist það fljótt svo alvaran var tekin við á ný. En svo lá ekkert annað fyrir hendi á föstudaginn heldur enn að skella sér á ball með Á Móti Sól8) byrjuðum í mat hjá múttu og fórum svo framí marbæli og beint í pottinn. Svo þegar komið var á ballið eftir mikinn misskilning þá var drifið sig inn og byrjað að dansa af sér allt vit og skemmt sér einsog vitleysingur. svo var maður búinn daginn eftir, sérstaklega Jonas systirin, þökk sé hennar yndislega bróður, Hirti. Fæturnir&bakið í hassi en það skemmdi þó ekki fyrir að ballið var æði. þótti þetta samt frekar slappt ball þegar farið er útí slúður og slagsmál en það getur líka verið góður kostur;)

Spurning dagsins - Hvernig fannst þér ballið/böllin?

systurnar kveðja hæstánægðar með ballið8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 12:04:30 / systurnar

traustur vinur

þá er liðinn einn dagur frá því að við systurnar stofunuðum þessa glæstu síðu8) vorum í miklu brasi í gær þegar við vorum að vinna í henni, held við höfum verið að í allt gærkvöld! en útkoman varð lítil sem engin8| ekki til mikills fögnuðar hjá okkur! En svo eru nákvæmlega 2 dagar í ballið í miðgarði! styttist óðfluga í djamm hjá okkur og það verður sko aldeilis skemmt sér! byrjum í partýi á marbæli (verðandi kúabæli frk elefsen) og liggjum svo ferskar í þynnku. Jonas systirin (ekki jónas einsog margir vilja mislesa, heldur JONAS) mætir svo eldhress uppí skíðalyftu í húsamúsarbúningi og rennir sér á snjóþotu. sounds good. Gengið hefur sú saga um að ball eigi að vera í Miðgarði í kvöld með Von og er það STÓR misskilningur! Það hefur aldrei staðið til! En í dag erum við mættar útí blokk hjá múttu, sitjum uppí sófa og erum að blogga. bíðum eftir að klukkan verði 14:25 því þá getum við byrjað að worka tanið;) en núna ætlum við að fara að gera eitt af því sem við gerum best og fara að baka8) -viljum nú samt sjá komment frá ykkur sem komið inná þessa síðu og segjið okkur nú hvernig ykkur líst á;)

Lagið sem kom okkur á fætur í morgunn - Á Móti Sól - Traustur Vinur

systurnar - over and out8)


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 13:54:14 / systurnar

prufa

já þá erum við systurnar komnar á kreik með bloggsíðu og allt að verða vitlaust! þessi síða mun fjalla um líf okkar meira og minna! djammið og það sem við gerum af okkur í sameiningu og í sitthvorum landshlutanum. Reynum okkar besta í að vera duglegar að blogga og segjum bara kjósið framsókn til betra lífs! En annars svona til að sýna smá sýnishorn af týpísku mánudagskvöldi hjá okkur þá kemur íris til Guðrúnar og við horfum á the o.c. förum svo uppeftir til skötuhjúanna og horfum á lost og fáum okkur kannski eitt stykki bjór. svo einsog þið takið líklegast eftir þá erum við komnar með Denny Crane þema (ef það er ekki komið þá mun það koma áður en þið vitið af)  enda denny crane okkar maður og æðibitinn okkar!

Lag Dagsins - Sólstrandragæjarnir - Sólstrandargæji

systurnar kveðja með von um gott upphaf8)


» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012